Á haustþingi SSV sem fór fram 16. október s.l. var staðsetning ríkisstarfa sérstakt umræðuefni. Frummælendur voru; Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra, Hólmfríður Sveinsdóttir formaður stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál og sérfræðingur í samgöngu og sveitarstjórnarráðuneytinu, Magnús Guðmundsson framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs og Vífill Karlsson hagfræðingur og atvinnuráðgjafi SSV. Eftir inngangserindi frummælenda hófust pallborðsumræður sem Hlédís Sveinsdóttir stýrði. Kristján Gauti blaðamaður á Skessuhorni fylgdist með umræðunni og birtist ítarleg frétt um umræðuna í síðuata tölublaði Skessuhorns. Hana má nálgast hér
Á YOUTUBE RÁS SSV má finna erindi frummælenda og pallborðsumræður.