Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytiðauglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.
- Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta.
- Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða frumkvöðla og fyrirtækja.
Sérstök áhersla er lögð á
Verkefni sem skapa ný störf Nýsköpun og/eða samstarfsverkefni sem byggir á hönnun - Nýsköpun sem á sér stað í klasasamstarfi
Verkefni sem eru að stíga fyrstu skref á alþjóðamarkaði
Styrkur getur að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnis. Ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga s.s. í tækjum og búnaði.Frekari upplýsingar og rafræn umsóknarform eru á www.nmi.isBeiðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið hildur@nmi.issem og til undirritaðrar.