Starf er laust við urðunarstaðinn í Fíflholtum
Sorpurðun Vesturlands hf. auglýsir eftir starfsmanni í Fíflholt.
Starfið felst í almennri vinnu, ásamt vélavinnu á urðunarstaðnum sem er staðsettur í Fíflholtum á Mýrum.
Vinnutími frá kl. 8 – 17
Óskað er eftir liprum og duglegum einstaklingi sem þarf að geta unnið sjálfstætt.
Starfsmaðurinn þarf að hafa vinnuvélaréttindi.
Hvenær viðkomandi hefur störf fer eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri, Hrefna B Jónsdóttir í síma 863-7364.
Umsóknir sendist til Sorpurðunar Vesturlands hf. Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnesi eða á netfangið hrefna@ssv.is fyrir 22. september n.k.