Rannsókn til að meta ávinning af sameiningum sveitarfélaga á Íslandi

SSVFréttir

Grétar Þór Eyþórsson prófessor við Háskólann á Akureyri og Vífill Karlsson hagfræðingur og atvinnuráðgjafi hjá SSV fengu grein birta í tímaritinu Region sem er gefið út af ERSA (European Regional Science Association). Í greinninni nota þeir fasteignaverð til að reyna að meta hvort samfélagslegur ávinningur hafi hlotist af sameiningum sveitarfélaga. Aðferðin hefur verið nýtt á ýmsum sviðum hagfræðinnar til að meta virði huglægra verðmæta (eins og t.d. náttúrugæða) en ekki í þessu samhengi. Niðurstaðan er sú að sameiningar hafa skilað árangri, einkum ef sameinuð eru mörg sveitarfélög í einu (fleiri en tvö). Tilefni rannsóknarinnar voru ótal margar hefðbundnari aðferðir við að meta ávinning sameininga sem skiluðu misvísandi niðurstöðum. Þetta innlegg inn á það málefnasvið og fram til þessa er ein skýrasta vísbending um ávinning af sameiningum sveitarfélaga á Íslandi.

Nánar á The Journal of ERSA