Öndvegisstyrkir Sóknaráætlunar Vesturlands

SSVFréttir

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) fengu nýverið viðbótar fjárveitingu frá fjárlaganefnd til Sóknaráætlunar Vesturlands. Stjórn SSV hefur ákveðið að nýta fjárveitinguna til þess að veita öndvegisstyrki til áhugaverðra verkefna á Vesturlandi.

Viðkomandi verkefni geta verið á hugmyndastigi eða lengra komin. Þau þurfa að hafa skírskotun til svæðisins, nýsköpunar í atvinnulífi og menningu þess.  Hugmyndin með úthlutun Öndvegisstyrkja er að úthluta færri en stærri styrkjum en alla jafna er úthlutað úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Til úthlutunar verða 45 m.kr.

Vakin er athygli á því að sérstakar reglur gilda um úthlutun Öndvegisstyrkja og nánari upplýsingar um þær eru á vefsíðu SSV.

Ráðgjöf og aðstoð við umsóknir veita:

Helga Guðjónsdóttir helga@ssv.is  895-6707

Hrafnhildur Tryggvadóttir hrafnhildur@ssv.is  849-2718

Ólöf Guðmundsdóttir olof@ssv.is  898-0247

Sigursteinn Sigurðsson sigursteinn@ssv.is  698-8503

Umsóknarfrestur er til klukkan 14:00, þriðjudaginn 2.júní 2026

Hlekkur að gáttinni er hér