
Ný fyrirtækjakönnun landshlutanna 2025 kom út þann 22.apríl og sýnir að dregið hefur úr ráðninga- og fjárfestingaráformum íslenskra fyrirtækja frá síðustu könnun. Þrátt fyrir það eru enn fleiri fyrirtæki sem hyggjast sækja fram en draga saman. Um 29% fyrirtækja vantar starfsfólk með ákveðna menntun og fjórðungur þeirra leitar að sértækri færni, einkum tengdri tæknikunnáttu, samskiptum og sjálfstæðum vinnubrögðum.
Vífill Karlsson hagfræðingur hjá SSV fór í viðtal vegna könnunarinnar hjá Speglinum á mánudaginn og finna má í spilaranum hér en viðtalið við Vífil hefst á mínútu 06:09