Nýsköpun í vestri – Frumkvöðla- og fyrirtækjamót á Vesturlandi

SSVFréttir

Frumkvöðla- og fyrirtækjamótið Nýsköpun í vestri verður haldið föstudaginn 29. september kl. 10-18 í Hjálmakletti í Borgarnesi. Mótið opið öllum þeim sem hafa áhuga á nýsköpun og frumkvöðlastarfi, umhverfismálum og sjálfbærni.

Markmið Nýsköpunar í vestri er efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á Vesturlandi, tengja fólk saman og stuðla að nýjum verkefnum og verðmætasköpun á svæðinu.

Dagskráin er blanda af fræðslu, vinnustofum, reynslusögum og tengslamyndun. Þátttakendur munu þróa og vinna með hugmyndir, læra af reyndum frumkvöðlum og kynnast nýju fólki. Hluti af dagskránni er úthlutun atvinnu- og nýsköpunarstyrkja úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands og gefst þátttakendum tækifæri til að spjalla við styrkhafa. Nýsköpunarrýmið Kvikan verður heimsótt og dagurinn endar með léttum veitingum og stefnumóti.

Þátttaka í Nýsköpun í vestri er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig til að áætla veitingar og minnka matarsóun. Nánari upplýsingar má einnig finna á Facebook.

Nýsköpun í vestri er samstarfsverkefni Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Gleipnis, nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi og Nývest og er styrkt af Sóknaráætlun Vesturlands.