Tvö verkefni af Vesturlandi valin í Startup Landið 2026

SSVFréttir

Fjórtán nýsköpunarverkefni víðs vegar að af landinu hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Landið 2026, sem er ætlaður frumkvöðlum og smáfyrirtækjum á landsbyggðinni. Af þeim eru tvö verkefni af Vesturlandi sem endurspegla þá fjölbreytni, sköpunarkraft og nýsköpun sem einkennir atvinnulíf landshlutans. Þátttakendur fá á næstu sjö vikum aðgang að sérfræðiráðgjöf, vinnustofum og öflugu tengslaneti sem styður við þróun viðskiptahugmynda og frekari uppbyggingu verkefnanna.

Markmið Startup Landsins er að styðja við viðskiptahugmyndir um allt land, efla atvinnulíf og auka verðmætasköpun utan höfuðborgarsvæðisins. Verkefnið er samstarfsverkefni landshlutasamtaka landsins, þar á meðal SSV, og sameinar frumkvöðla úr ólíkum greinum sem vinna að lausnum á sviði sjálfbærni, matvælaframleiðslu, heilsu, þjónustu og tækni.

Tvö verkefni frá Vesturlandi

Snigill – smár snigill, stórt prótein

Verkefnið Snigill – smár snigill, stórt prótein byggir á sniglarækt sem opnar nýjar og sjálfbærar leiðir í matvæla- og próteinframleiðslu á Íslandi.

Þátttakandi: Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir.

Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir og Margrét Thorsteinsson. Sigill: smár snigill – stórt prótein (á mynd vantar Gunnar Bjarnason).

Sif’s Hair Atelier

Sif’s Hair Atelier þróar sérhæfðar og náttúrulegar hárlausnir í háum gæðaflokki sem ætlað er að efla sjálfstraust kvenna sem glíma við hármissi.

Þátttakandi: Laura Martin Merino.

Laura Martin Merino.

Sif’s Hair Atelier býður upp á sérhæfðar, handunnar og afar raunverulegar hárlausnir í háum gæðaflokki fyrir konur sem glíma við hármissi. Markmiðið er að hjálpa þeim að endurheimta sjálfstraust sitt og líða á ný eins og þær sjálfar.

 

Frá hugmynd til framkvæmdar á sjö vikum

Dagana 25. og 26. september hittust þátttakendur, samstarfsaðilar og sérfræðingar í tveggja daga vinnustofu í Borgarnesi þar sem áhersla var lögð á tengslamyndun, skapandi vinnu og þróun hugmynda. Næstu sjö vikurnar sækja þátttakendur vinnustofur, fá markvissa ráðgjöf frá sérfræðingum atvinnulífsins og vinna að mótun viðskiptalíkana sinna og markaðsáætlana.

Hraðlinum lýkur formlega á Suðurlandi þar sem lokaviðburður Startup Landsins verður haldinn á Uppsprettu Suðurlands í Horseday-höllinni í Ölfusi þann 6. nóvember. Þar fá þátttakendur tækifæri til að kynna fullmótuð verkefni sín fyrir fjárfestum, samstarfsaðilum og öðrum áhugasömum um nýsköpun og atvinnuþróun.

Þátttaka tveggja verkefna af Vesturlandi undirstrikar þann kraft sem er til staðar í nýsköpun á svæðinu og mikilvægi þess að styðja við frumkvöðla í uppbyggingu nýrra lausna, atvinnusköpunar og verðmæta fyrir samfélagið.