Þá er komið að fjórða og næstsíðasta fundinum í þessari skemmtilegu fundaröð.
Umræðuefni kvöldsins er fjórði hluti menningarstefnunnar, menningararfur. Pallborðið verður í beinu streymi í kvöld á milli 20:00 og 21:00.
Fjórir flottir einstaklingar af sviði menningarmála á Vesturlandi ræða um MENNINGARARF
- Guðrún Jónsdóttir (Safnahús Borgarfjarðar)
- Guðrún Vala Elísdóttir (Símenntunarmiðstöð Vesturlands – RKÍ)
- Magnús A. Sigurðsson (Minjavörður Vesturlands)
- Bjarnheiður Jóhannesdóttir (Eiríksstaðir og Vínlandssetur)
Sigursteinn Sigurðsson stýrir umræðum sem áður. Allir þátttakendur geta tekið þátt í umræðunum með því að senda inn fyrirspurnir eða ábendingar í gegnum athugasemdakerfi Facebook og Mentimeter (Menti-kóði verður gefinn upp á fundinum).