Matarhátíð & Veisla á Vesturlandi í nóvember 2021

SSVFréttir

Veisla á Vesturlandi verður haldin hátíðleg allan næstkomandi nóvember mánuð. Þá verður einnig haldin Matarhátíð á Hvanneyri þann 13. nóvember en dagskrá þess viðburðar verður auglýst þegar nær dregur. Allar upplýsingar um Matarhátíð og Veislu á Vesturlandi má nú nálgast á nýrri vefsíðu, www.matarhatid.is .

Síðast var haldin Veisla á Vesturlandi árið 2019 og hlaut viðburðurinn mikið lof enda alltaf gaman að geta fengið sér gott í gogginn, hitta fólk og njóta saman í skammdeginu.
Nú þegar hafa margir skipulagt skemmtilega viðburði, skipulagt jólahlaðborð eða breytt matseðlum í nóvember og við hvetjum ykkur til þess að skrá þetta allt í viðburðadagatalið okkar.

Skráning í Veislu á Vesturlandi