Málþing um Menningarstefnu Vesturlands fer fram í Stykkishólmi

SSVFréttir

Menningarstefna Vesturlands var formlega samþykkt í byrjun árs 2021 og er hún í gildi til 2024. Stefnan er áhersluverkefni Sóknaráætlunnar Vesturlands. Að stefnunni komu fulltrúar níu sveitarfélaga á Vesturlandi auk fjögurra aðila starfandi í menningartengdum atvinnugreinum í landshlutanum. Stefnan er endurskoðun eldri menningarstefnu Vesturlands, en að þessu sinni var gerð að megináherslu að efla menningartengdar atvinnugreinar auk þess sem sérstök áhersla var lögð á menningu innflytjenda á Vesturlandi.

En nú er starfstími stefnunnar um það bil hálfnaður og þá er tilefni að staldra við og taka stöðu mála. Er það gert með því að blása til málþings um Menningarstefnu Vesturlands með yfirskriftinni hver sé staðan. Farið verður yfir þær aðgerðir sem settar voru fram í stefnunni og mælikvarðar skoðaðir og velt vöngum hvernig opinberar stefnur séu almennt að gagnast í uppbyggingu menningarstarfs.

Þá verður haldin málstofa þar sem fjórir gestir víðsvegar af Vesturlandi koma saman í pallborð og taka stefnuna til umræðu.

Anna Melsteð, þjóðfræðingur og eigandi Anok margmiðlunar ehf í Stykkishólmi, Heiðar Mar Björnsson kvikmyndagerðarmaður, einn af stofnendum Iceland Documentary Film Festival og stofnandi Muninn kvikmyndagerðar, Þorgrímur E. Guðbjartsson – menningarfrömuður að Erpstöðum í Dölum og Þórunn Kjartansdóttir forstöðumaður Safnahúss Borgarfjarðar.

Viðburðurinn fer fram í Vatnasafninu í Stykkishólmi og eru allir velkomnir.    Auk þess verður stefnan í beinu streymi, og verður upptakan aðgengileg eftir að viðburði lýkur.

Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúi SSV stýrir fundi.

Viðburðurinn á Facebook: https://fb.me/e/BOa7pAyq