Lóa, nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina – frestur framlengdur til 22. mars

SSVFréttir

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra auglýsir eftir umsóknum um Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina.  

Hlutverk styrkjanna, sem nú verða veittir í fyrsta sinn, er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra. Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar vegna fyrirhugaðar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Umsóknarfrestur er til 22. mars 2021.
Umsóknum er skilað rafrænt eyðublaðavef stjórnarráðsins

Nánar um Lóu

Við minnum á Atvinnuráðgjöf SSV sem getur veitt aðstoð við gerð styrkumsókna