Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi boðuðu til fundar á Snæfellsnesi í síðustu viku en Heiður Haraldsdóttir iðjuþjálfi hjá SSV og Laufey Jónsdóttir tengiráðgjafi Gott að eldast hjá SSV heimsóttu þrjú sveitarfélög.
Kynntar voru niðurstöður nýrra könnuna um virkni, þátttöku og líðan íbúa eldri en 80 ára í hverju sveitarfélagi.
Farið var yfir hlutverk iðjuþjálfa og hvert þeirra framlag er til aukinna vellíðan, lífsgæða og virkni en einnig var rætt um stöðu samþættrar þjónustu við eldra fólk og hvernig ólíkir þjónustuþættir vinna saman að því að styðja við sjálfstætt og innihaldsríkt líf.
Fundir voru í Höfðaborg í Stykkishólmi, Klifi í Ólafsvík og í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði og var mjög vel mætt á alla fundi.

Heiður Haraldsdóttir í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði

Laufey Jónsdóttir í Höfðaborg í Stykkishólmi

Góð mæting í félagsheimilið Klif í Ólafsvík