Fjar-kynning á nýrri skýrslu um óstaðbundin störf

SSVFréttir

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) bjóða til fjar-kynningar næstkomandi mánudag, á nýrri skýrslu sem Rannsóknarsetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum vann fyrir SSV um óstaðbundin störf og hvort þetta sé tækifæri til íbúafjölgunar og atvinnusóknar á landsbyggðinni með sérstaka áherslu á Vesturland þó.

Fundurinn byrjar klukkan 09:00.

Tekinn er frá 1 klst. fyrir fundinn en kynningin sjálf er um 20 mínútur og svo verður boðið upp á umræður og spurningar.

Ekki þarf að skrá sig sérstaklega á fundinn.

Hlekkur fundarins er hér