
Miðvikudaginn 22.apríl komu þau Hólmfríður Sveinsdóttir úr Innviðaráðuneytinu og Reinhard Reynisson frá Byggðastofnun og kynntu fyrstu drög að nýrri byggðaáætlun. Fulltrúar Innviðaráðuneytis og Byggðarstofnunar hafa nú fundað með öllum landshlutasamtökum sveitarfélaga um drögin.
Markmiðið með að setja drögin fram á þessu stigi er að kalla eftir sjónarmiðum og ábendingum landsbyggðarfólks áður en drögin verða mótuð frekar og útfærð endanlega. Kynningu sátu fulltrúar í samráðsvettvangi Sóknaráætlunar Vesturlands, Ungmennaráði Vesturlands og starfsfólk SSV.
Innviðaráðherra áætlar að leggja fram þingsályktunartillögu um stefnumótandi byggðaáætlun til fimmtán ára ásamt aðgerðaráætlun til fimm ára haustið 2026.
Góðar umræður mynduðust á fundinum.
