BLÁI ÞRÁÐURINN

SSVFréttir

Nú er mastersverkefni Ásu Katrínar Bjarnadóttur í sjálfbærri borgarhönnun við háskólann í Lundi um þematengdan strandstíg á Akranesi til sýnis á 2.hæð í glerrýminu á Breið nýsköpunarsetri. Hægt er að skoða sýninguna á opnunartíma 8-16

 

„BLÁI ÞRÁÐURINN” er hönnunarsýning um menningu, sögu, náttúru og upplifun strandlínu Akraness. Á sýningunni er lögð áhersla á að sýna hvernig hönnun og framsetning getur aukið aðdráttarafl strandlengju Akraness með því að tengja, virkja og endurskilgreina strandlínuna. Unnið er út frá ríkri sögu bæjarins þar sem menning, saga, náttúra og upplifun hefur mótast í aldanna rás út frá nálægð við sjóinn. Hönnunarforsendur sem þessar gætu orðið til þess að bæjarfélagið yrði leiðandi í náttúruupplifun innan þéttbýlisumhverfis í minni sveitarfélögum.  Sýnt er fram á, í fjölbreyttum útfærslum í gegnum mismunandi listform, hvernig strandstígur gæti þjónað sem vettvangur til fræðslu, útivistar, lýðheilsu og aukið sjálfsvitund íbúa. Fólki er boðið að gægjast inn í glugga þessa umbreytingarsvæðis sem fjörurnar eru og læra um töfrana sem þar eiga sér stað og hvað má finna í kjarna bæjarsálarinnar.

 

Sýningin er styrkt af Akraneskaupstað sem menningartengt verkefni og af Breið Nýsköpunarsetri.