Stjórn SSV fagnar því að veitt var 200 m.kr. á fjárlögum 2018 til tækjakaupa við sjúkrahús og
heilsugæslustöðvar á landsbyggðinni. Eftir sem áður vill stjórn árétta bókun frá fundi sínum 4
október s.l. þar sem sagði „Stjórn SSV skorar á ríkisvaldið að tryggja fjármagn til að endurnýja
og efla tækjakost sjúkrahúsanna á Akranesi og í Stykkishólmi sem og á heilsugæslustöðvum á
Vesturlandi. Vegna niðurskurðar og takmarkaðra fjárveitinga til tækjakaupa síðastliðin ár, er
uppsöfnuð þörf á viðhaldi og endurnýjun búnaðar orðin mjög aðkallandi. Mikilvægt er að
örugg tæki og búnaður séu til staðar á sjúkrahúsunum og heilsugæslustöðum á Vesturlandi
svo hægt sé að sinna þeirri þjónustu sem þar er til staðar. Þá er ljóst að betri tækjakostur mun
auka verulega líkurnar á því að hægt sé að ráða fagfólk til starfa við stofnunina, en viðvarandi
skortur hefur verið á fagfólki undanfarið.“