AÐALFUNDARBOÐ
Hér með er boðað til aðalfundar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Fundurinn fer fram á Hótel Hamri, Borgarnesi miðvikudaginn 16. mars 2022.
Sama dag verða einnig aðalfundir Starfsendurhæfingar Vesturlands, Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands, Heilbrigðisnefndar Vesturlands og Sorpurðunar Vesturlands.
Dagskrá miðvikudaginn 16. mars verður sem hér segir:
Kl.09:30 Aðalfundur Starfsendurhæfingar Vesturlands
Kl.10:15 Aðalfundur Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands
Kl.11:15 Aðalfundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands
Kl.12:15 Hádegisverður
Kl.13:00 Aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands
Kl.14:00 Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi
Eftirtaldir dagskrárliðir verða teknir fyrir á aðalfundi SSV samkvæmt lögum SSV:
- Skýrsla stjórnar SSV um starfsemi liðins árs
- Ársreikningur SSV, ásamt skýrslu endurskoðanda
- Ákvörðun um laun og þóknun til stjórnar og nefnda
- Kosning endurskoðanda
- Önnur mál löglega fram borin