Frumkvöðull ársins 2008 á Vesturlandi

Samtök Sveitarfélaga á VesturlandiFréttir

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi óska eftir tilnefningum um einstaklinga sem eru þess verðir að hljóta sæmdarheitið frumkvöðull ársins 2008 á Vesturlandi og skara fram úr í þróun nýrrar vöru, þjónustu eða viðburða í landshlutanum. Tilnefningar berist til Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnesi, með tölvupósti á netfangið frumkvodull@ssv.is eða fylla út eyðublað sem finna má hér. Tilnefningar þarf að rökstyðja með fáeinum orðum.


Dugnaður og frumkvæði eru mikilvægir eiginleikar í sérhverju samfélagi, ekki síst í smáum samfélögum. Þessir eiginleikar jafnvel fárra einstaklinga geta skipt sköpum um það hversu lífvænlegt er að búa í litlu samfélagi í dreifbýlinu.

Dómnefnd mun velja úr innsendum tilnefningum og mun dómnefnd einkum horfa til er eftirfarandi:

  1. Nýjabrum á svæðinu*. Nýnæmi í framkvæmdum, atvinnulífi eða félagslífi.
  2. Framfarir. Hversu mikið framfaraskref er um að ræða fyrir landshlutann.
  3. Áræði. Hversu mikið áræði og fyrirhyggju þurfti til að gera verk úr hugmyndinni.

(*Svæði getur náð yfir allt Vesturland eða viðkomandi sveitarfélag, allt eftir eðli starfseminnar og verður að meta það í hverju tilfelli fyrir sig.)

Tilnefningar þurfa að hafa borist fyrir 15. mars næstkomandi.

Eyðublað fyrir tilnefningar.