Sóknaráætlun Vesturlands 2015-2019

Samtök Sveitarfélaga á VesturlandiFréttir

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir kynningarfundum um Sóknaráætlun Vesturlands. Fundirnir fara fram á Akranesi, Búðardal, Grundarfirði og Borgarnesi. Á fundunum verður kynnt ný Sóknaráætlun Vesturlands. Í tengslum við sóknaráætlun þarf að móta framtíðarsýn fyrir Vesturland, skilgreina átaksverkefni og stofna Uppbyggingarsjóð Vesturlands. Sjóðurinn mun úthluta styrkjum til nýsköpunar í atvinnulífi og menningarmála og kemur í stað Vaxtarsamnings Vesturlands og Menningarsamnings Vesturlands. Allir velkomnir.


Nánar um dagskrá: Á Akranesi í fundarsal bæjarstjórnar Stillholti 16-18, 16 mars kl.17.00. í Búðardal verður fundurinn í Dalabúð, 17 mars kl.17.30. Í Grundarfirði verður fundurinn í Fjöbrautarskóla Snæfellinga, 18 mars kl.16.30. Í Borgarnesi að Bjarnabraut 8, 18 mars kl.20.00.