Fjölmörg tækifæri í auknu samstarfi Háskólans á Bifröst og atvinnulífs á Vesturlandi

Samtök Sveitarfélaga á VesturlandiFréttir

Nýverið funduðu fulltrúar frá Háskólanum á Bifröst og fulltrúar frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) þar sem rætt var um aukið samstarf á milli Bifrastar og SSV sem og aukið samstarf á milli Bifrastar annars vegar og atvinnulífs og sveitarfélaga á Vesturlandi hins vegar. Það er ljóst að ýmis tækifæri eru til staðar og má þar nefna samstarf um rannsóknir, loka- og misserisverkefni nemenda, starfsþjálfun nemenda og endurmenntun starfsfólks svo fátt eitt sé talið. Rannsóknir sýna að einn af lykilþáttum í vexti og viðgangi landssvæða í nútímasamfélögum er samstarf háskóla og atvinnulífs. Með auknu samstarfi þessara aðila á Vesturlandi náum við ennfrekar að auka hagvöxt á svæðinu og nýta sóknarfærin.


Í lok fundar var þeim Vífli Karlssyni atvinnuráðgjafa hjá SSV og Pálmari Þorsteinssyni verkefnamiðlara Háskólans á Bifröst falið að vinna tillögur að verkefnum sem mætti setja af stað sem fyrst.