Í þætti vikunnar fékk Thelma til sín Helgu Halldórssdóttur, einn forsvarsmanna uppbyggingu upplifunargarðs í anda Latabæjar í Borgarnesi. Magnús Scheving, sem einnig er tengdur verkefninu, gaf leikmuni Latabæjar til varðveislu í Borgarnesi en sjálfur á hann þar rætur og byggir Latibær og persónur hans að einhverju leyti á Borgarnesi. Helga segir okkur frá þróun verkefnisins og þá aðstoð sem þau …
Menningarstefna Vesturlands 2021-2025 í mótun
Vinna við mótun menningarstefnu Vesturlands 2021-2025 er nú í fullum gangi. Verkefnið er á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) en sérstakt fagráð, samsett af aðilum tilnefndum af sveitarfélögunum á Vesturlandi, auk fjögurra fagaðila úr menningartengdum atvinnugreinum hefur verið skipað til að stýra stefnumótuninni. Til viðbótar við þann hóp hefur öflugum aðilum sem starfa á sviði list- og menningargreina á …
Spennandi hlaðvörp á Vesturlandi
Vinsældir hlaðvarpa hafa farið vaxandi að undanförnu og skal engan undra. Hlaðvörpin eru frábær aðferð til að bæði njóta og miðla skemmtun, fróðleik og upplýsingum til áheyrenda í gegnum snjalltækin. Á Vesturlandi eru starfandi og í bígerð nokkur hlaðvörp sem við vekjum hér athygli á. MYRKA ÍSLAND OG ÞJÓÐLEGIR ÞRÆÐIR https://kjarninn.is/hladvarp/2018-09-20-thjodlegir-thraedir/ Þær stöllur Sigrún Elíasdóttir og Anna Dröfn Sigurjónsdóttir halda …
Nýstofnuð Áfangastaðastofa Vesturlands og stoðþjónusta ferðamála á Vesturlandi
Fjórði þáttur Hlaðvarps SSV – Vesturlands í sókn er tileinkaður stoðgrind ferðamála á Vesturlandi, Markaðsstofu Vesturlands og nýstofnaðri Áfangastaðastofu Vesturlands. Margrét Björk Björnsdóttir sat fyrir svörum um málefni ferðamála á Vesturlandi, hvernig stoðþjónustan okkar virkar og hvernig við getum saman byggt upp öruggari, fjölbreyttari og sjálfbærari áfangastað hér á Vesturlandi. Allir unnendur ferðamála á Vesturlandi og uppbyggingu innviða munu hafa …
Fundað vegna ferjunnar Baldurs
Fulltrúar frá Vestfjarðastofu, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og sveitarfélögum við Breiðafjörð hafa undanfarnadaga átt fundi með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Vegamálastjóra og þingmönnum Norðvesturkjördæmis um stöðuna sem upp er komin vegna bilunar sem varð í Breiðafjarðaferjunni Baldri í síðustu viku. Eins og öllum er kunnugt varð bilun í aðalvél Baldurs sem varð til þess að ferjan varð vélarvana á miðjum …
Aðalfundur SSV fer fram miðvikudaginn 24. mars
AÐALFUNDARBOÐ Hér með er boðað til aðalfundar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Fundurinn fer fram á Hótel Hamri, Borgarnesi miðvikudaginn 24. mars 2021. Sama dag verða einnig aðalfundir Starfsendurhæfingar Vesturlands, Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands, Heilbrigðisnefndar Vesturlands og Sorpurðunar Vesturlands. Dagskrá miðvikudaginn 24. mars verður sem hér segir: Kl.09:30 Aðalfundur Starfsendurhæfingar Vesturlands Kl.10:15 Aðalfundur Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands Kl.11:15 …
Nýsköpunarnet Vesturlands
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi settu af stað verkefnið „Nýsköpunarnet Vesturlands“ á dögunum en það hlaut styrk í desember 2020 úr stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024 til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða (liður c1). Verkefnið Nýsköpunarnet Vesturlands felst í því að tengja saman þá aðila sem vinna að nýsköpun á Vesturlandi og efla þau nýsköpunarsetur og samvinnurými sem eru að stíga sín fyrstu …
Lóa, nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina – frestur framlengdur til 22. mars
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra auglýsir eftir umsóknum um Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina. Hlutverk styrkjanna, sem nú verða veittir í fyrsta sinn, er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra. Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar vegna fyrirhugaðar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Umsóknarfrestur er …
Vinna við endurskoðun Menningarstefnu Vesturlands hafin
Menningarstefna Vesturlands var fyrst samþykkt árið 2016 og var í gildi til 2019 og því er kominn tími á endurskoðun. Sá hátturinn er nú hafður að sveitarfélögin á Vesturlandi tilnefndu einn fulltrúa hvert til að sitja í sérstöku fagráði sem fer yfir ferla og áherslur í nýrri stefnu. Auk þeirra sitja fjórir fagaðilar sem eru starfandi í menningartengdum atvinnugreinum sem …
Vesturland í sókn – Atvinnulífið á breytingaskeiði, hvað hefur gerst í kjölfar Covid-19?
SSV boðar til fundar á Teams miðvikudaginn 17. mars kl. 09:00-10:00. Á fundinum mun Sævar Kristinsson ráðgjafi hjá KPMG fara yfir breytingar í atvinnulífi á Vesturlandi undanfarin tvö ár með hliðsjón af sviðmyndagreiningu um framtíð atvinnulífs á Vesturalandi sem birt var síðla árs 2019. Í skýrslu sem gefin var út undir heitinu Atvinnulíf á Vesturlandi árið 2040 voru birtar fjórar …