Skýrslan Tölfræði um Vesturland hefur verið uppfærð að hluta. Henni er haldið við því sumum finnst gott að geta skoðað tölfræði á því formi þó svo við hjá SSV birtum tölfræði á vefnum okkar líka og köllum hana skemmtilega tölfræði þar. Tölur yfir fjölda útlendinga á Vesturlandi var uppfærð í skýrslunni – bæði fjöldi og fjöldinn sem hlutfall af heildarfjölda …
Útlönd standa með Vesturlandi
Í síðusutu viku var sagt frá því hér að 39 fleiri hafi flutt frá Vesturlandi til höfuðborgarsvæðisins en frá höfuðborgarsvæðinu til Vesturlands árið 2016, kallað flutningsjöfnuður. Ef dregin er upp sambærileg mynd fyrir Vesturland gagnvart öðrum landsvæðum ásamt útlöndum kemur í ljós að 152 fleiri flytja frá útlöndum til Vesturlands en frá Vesturlandi til útlanda árið 2016 (rauður ferill/lína). Þessi …
Fjarbúar og fasteignamarkaður á landsbyggðunum
Í dag kom út skýrslan: Fjarbúar og fasteignamarkaður á landsbyggðunum. Fjarbúaspenna var í brennidepli þessarar skýrslu, fjöldi annarra heimila deilt með heildarfjölda íbúða. Önnur heimili eru íbúðir í tilteknu sveitarfélagi sem eru í eigu fjarbúa og bjóðast ekki á almennum markaði til leigu eða sölu. Í þessari skýrslu kallast fólk fjarbúar sveitarfélags A ef þeir eiga íbúð í sveitarfélagi A …
Vesturland tapaði fólki til höfuðborgarsvæðisins 2016
39 fleiri fluttu frá Vesturlandi til höfuðborgarsvæðisins en frá höfuðborgarsvæðinu til Vesturlands árið 2016. Á Suðurlandi og Suðurnesjum var þessu öfugt farið þar sem fleiri fluttu til þeirra landshluta frá höfuðborgarsvæðinu en frá þeim til höfuðborgarsvæðisins. Þetta gerist reyndar svo hratt á Suðurnesjum að aldrei fyrr hefur þessi jöfnuður verið þeim hagstæðari en árið 2007 þegar skoðuð er þróunin frá …
Dregur úr fjárfestingarvilja fyrirtækja á Vesturlandi
Eitthvað hefur dregið úr vilja fyrirtækja á Vesturlandi til fjárfestinga. Þetta kom fram í skoðanakönnun sem gerð var meðal þeirra haustið 2016. Samskonar könnun var gerð bæði haustið 2014 og 2015. Samanburður á milli ára gefur til kynna að dregið hafi úr fjárfestingaviljanum. Þetta og margt fleira má sjá betur á heimasíðu okkar hjá SSV undir liðnum skemmtileg tölfræði eða …
Fyrirtæki á Vesturlandi, fjárfestar og fjárfestingartækifæri
Í dag komu Kristinn Hafliðason og Arnar Guðmundsson frá Íslandsstofu. Þetta er liður í verkefni hjá þeim sem miðar að því að fá betri yfirsýn um fjárfestingar tækifæri vítt og breitt um landið. Til Íslandsstofu leitar fjöldi fjárfesta erlendra sem hérlendra og hefur aukist á undanförnum misserum. Í rauninni er allt undir en sérstakur áhugi hefur ferðaþjónustu á Íslandi verið …
Áhrif ferðaþjónustu á fjárhag sveitarfélaga
Vífill Karlsson hjá SSV fjallaði um niðurstöður rannsóknar á áhrifum ferðaþjónustu á fjárhag sveitarfélaga á sjónvarpsstöðinni Hringbraut þar sem Linda Blöndal og Sigmundur Ernir spurðu hann út úr. Þetta var 10. maí 2017. Viðtalið hefst þegar komið er u.þ.b. 12 mínútur inn í þáttinn (smellið hér). Rannsóknarskýrslan sjálf fer á vefinn í fullri lengd þegar birtingarferli er lokið. Í millitíðinni …
Biggest looser á Vesturlandi
Í dag komu Gunnar Jóhannsson og Alexander Kostic frá Sjónvarpi Símans til viðtals við Markaðsstofu Vesturlands og SSV til að leita hugmynda af mögulegum tökustöðum, áhugaverðum þrautum og samstarfsaðilum á Vesturlandi fyrir Biggest looser. Næsta sería Biggest looser verður tekinn á Vesturlandi og mun hafa aðsetur í Bifröst. Á þessum fyrsta fundi sátu Vífill Karlsson, Kristján Guðmundsson og Sigursteinn Sigurðsson fyrir …
Fasteignaverð hækkar sumstaðar á Vesturlandi
Fasteignaverð hækkaði á milli áranna 2015 og 2016 en ekki í öllum tilvikum í bæjum á Snæfellsnesi. Sjá nánar í nýjum tölum í Tölfræði um Vesturland á bls. 21-23. (hér)