Vífill Karlsson, hagfræðingur hjá SSV og dósent við HA, kynnti frumniðurstöður rannsóknar um búsetuskilyrði til sveita föstudaginn 28. september s.l. SSV fékk styrk úr Byggðarannsóknasjóð til að ráðast í þetta verk og mun rannsóknin standa yfir fram á vor. Nú þegar er fyrirhuguð önnur málstofa í mars 2019 að Hólum þegar fleira liggur fyrir af niðurstöðum rannsóknarinnar. Rannsóknin ber titilinn: …
Ferð atvinnuráðgjafa til Kanada
Um miðjan maí 2018 fórum við Ólafur Sveinsson fyrir hönd Atvinnuráðgjafar Vesturlands/SSV til Kanada í boði Byggðastofnunar. Tilgangur ferðarinnar var að kanna það hvernig nágrannar okkar í vestri bæru sig að í atvinnuþróunarmálum í dreifbýli. Stefnan var tekin á Toronto í Ontario fylki. Mikill fjöldi byggingarkrana á víð og dreif um Toronto var það fyrsta sem blasti við okkur þegar …
Meðalaldur hækkar á Vesturlandi
Á Vesturlandi hækkaði meðalaldur minnst á Snæfellsnesi, um 0,5%, á milli áranna 2017 og 2018 en til samanburðar hækkaði hann á landsbyggðunum um 0,2% og 0,3% á landinu öllu á milli áranna. Hins vegar hækkaði hann minnst í Dölunum, 1,1%, þegar litið er til s.l. fjögurra ára en 1,7% landsbyggðunum og 2% á landinu öllu á sama tíma. Þar er …
Fyrirtækjakönnun á Vesturlandi
Frekari úrvinnsla á fyrirtækjakönnun Vesturlands var sett nýlega á vefinn (smellið hér). Könnunin var framkvæmd í nóvember og desember 2017. Almennt séð eru fyrirtækin jákvæð en hafa samt eitt og annað að athuga við það samfélag sem þau starfa, bæði jákvætt og neikvætt, eins og kemur m.a. fram í svörum við opnum spurningum könnunarinnar. Í samantektinni er texta haldið í …
Íbúakönnun á Íslandi sett á vefinn og kynnt í dag
Íbúar í Vogum á Vatnleysuströnd hamingjusamastir Skýrslan Íbúakönnun á Íslandi – staða og mikilvægi búsetuskilyrða 19 landsvæða á landsbyggðunum frá Hornafirði í austri að Skagafirði í norðri verður kynnt í Allsherjarbúð, sal Sambands íslenskra sveitarfélaga í dag, föstudaginn 11. maí, klukkan 13.00. Vífill Karlsson, hagfræðingur, dósent og ráðgjafi mun kynna niðurstöðu könnunarinnar sem hann hefur unnið að síðustu ár en þar kemur meðal …
Nýr Hagvísir: Fasteignamarkaður á Vesturlandi
Í síðustu viku kom út Hagvísir Vesturlands sem tekur nú fyrir stöðuna á fasteignamarkað Vesturlands. Meðal niðurstaðna er: Íbúðaverð hefur hækkað mikið á Íslandi sl. þrjú til fimm ár, einkum á höfuðborgarsvæðinu, en það hafa tekjur heimilanna líka gert. Þegar fjöldi íbúða er bara borinn saman við íbúa á aldrinum 18-75 ára var rýmra um fólk árið 2016 en 1994 …
Íbúakönnun Vesturlands kynnt
Nú hefur kynning verið tekin upp á Íbúakönnun Vesturlands og má nálgast hana hér (smellið hér). Með kynningunni er ætlunin að koma efninu sem víðast á Vesturlandi og þjóna sveitarstjórnarmönnum betur – hvar sem þeir eru. Þá er markmið kynningarinnar líka það að útskýra myndræna og tölfræðilega framsetningu niðurstaðnanna. Á bakvið þessa hana er skýrsla sem fer ofan í niðurstöðurnar …
Fjöldi ferðamanna og tekjur og kostnaður íslenskra sveitarfélaga
Í gær var gefin út fræðigrein eftir Vífil Karlsson, Hjalta Jóhannesson og Jón Óskar Pétursson um áhrif ferðaþjónustu á fjárhag sveitarfélaga í fræðiritinu Stjórnmál og stjórnsýsla. Greinin byggir á vinnu við verkefni sem gekk undir vinnuheitinu Bakpokar og bæjarsjóðir og sagt var frá bráðabirgðarniðurstöðum á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2016. Í útgáfuferlinu tók greiningin breytingum til batnaðar og breytileiki á milli sveitarfélaga …
Ný tölfræði
Ýmsar nýjar tölur yfir Vesturland í heftinu Tölfræði um Vesturland. Þar er m.a. að finna þróun yfir fjölda þjóðerna brotna upp eftir sveitarfélögum á Vesturlandi (á bls. 22). Þar má sjá að þjóðernin eru flest á Akranesi (33) og í Borgarbyggð (30) 1. janúar 2017 . Smellið hér.
Íbúakönnun 2016
Fyrir fáeinum dögum kom út skýrslan Íbúakönnun á Vesturlandi: Staða og mikilvægi búsetuskilyrða. Í könnuninni eru íbúar Vesturlands beðnir um að taka afstöðu til stöðu og mikilvægi margra mikilvægustu búsetuþátta hvers samfélags. Þessi könnun hefur verið gerð þriðja hvert ár og er þetta í fimmta skiptið sem hún er framkvæmd. Samantekt niðurstaðna er að finna framarlega í skýrslunni sem þið …