Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) hafa ráðið í nýtt starf teymisstjóra í þróunarverkefninu „Gott að eldast“, með áherslu á samþætta félags- og heimaþjónustu fyrir eldra fólk á Vesturlandi. Í þessu nýja og fjölbreytta starfi mun Heiður leiða þverfagleg heimaendurhæfingarteymi sem starfa í samstarfi við HVE og sveitarfélög á Vesturlandi, með það að markmiði að þróa og styðja þjónustu sem stuðlar …
FORVITNIR FRUMKVÖÐLAR fyrsti hádegisfundur 6 janúar kl. 12
Hádegiserindi Forvitinna frumkvöðla hefjast á ný eftir hlé eftir áramót þegar fjallað verður um samfélagslega nýsköpun og hlutverk hennar í byggðaþróun. Fyrsti fyrirlestur ársins, „Forvitnir frumkvöðlar: Þegar íbúar móta framtíðina – samfélagsleg nýsköpun í þágu byggðaþróunar“ fer fram á Teams þriðjudaginn 6. janúar klukkan 12 á hádegi. Athugið að viðburðurinn er þátttakendum að kostnaðarlausu en áhugasöm geta skráð sig til þátttöku …
Jólakveðja SSV
Starfsfólk sendir hugheilar jóla- og nýárskveðjur með þökk fyrir ánægjuleg samskipti og hlýhug á árinu sem er að líða.
FORVITNIR FRUMKVÖÐLAR hádegisfundir hefjast á ný
Hádegiserindi Forvitinna frumkvöðla hefjast á ný eftir hlé eftir áramót þegar fjallað verður um samfélagslega nýsköpun og hlutverk hennar í byggðaþróun. Fyrsti fyrirlestur ársins, „Forvitnir frumkvöðlar: Þegar íbúar móta framtíðina – samfélagsleg nýsköpun í þágu byggðaþróunar“ fer fram á Teams þriðjudaginn 6. janúar klukkan 12 á hádegi. Athugið að viðburðurinn er þátttakendum að kostnaðarlausu en áhugasöm geta skráð sig til þátttöku …
Kynning á niðurstöðum umhverfismats Aurora fiskeldi vegna landeldi á laxi á Grundartanga í Hvalfirði.
Aurora fiskeldi og EFLA munu halda kynningarfund á Hótel Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit miðvikudaginn 17. desember n.k kl. 17:30 Kynning á niðurstöðum umhverfismats er hluti af umhverfismatsferli og mikilvægur liður í að hagaðilar og almenningur hafi vettvang til að kynna sér helstu niðurstöður og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Dagsskrá: 1. Aðstandendur félagsins munu kynna framkvæmdina 2. EFLA mun fara yfir helstu …
Frumkvæðissjóður DalaAuðs auglýsir eftir styrkjum
Búið er að opna fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóð DalaAuðs. Umsóknarfresturinn er til 21. janúar 2026, kl. 12.00 á hádegi. DalaAuður er samstarfsverkefni Dalabyggðar, Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og Byggðastofnunar og er undir hatti brothættra byggða. DalaAuði er ætlað að veita byggðalaginu innspýtingu, með því að hvetja til nýsköpunar í Dalabyggð og efla frumkvæði íbúa í samfélagslegum verkefnum. Liður í því …
Farsældardagur Vesturlands 2025 – öflug samvinna til farsællar framtíðar barna
Farsældardagur Vesturlands var haldinn þann 28. nóvember síðastliðinn í Hjálmakletti í Borgarnesi, þar sem ríflega 100 manns komu saman til að efla farsæld barna og ungmenna á svæðinu. Þátttakendur eiga það sameiginlegt að vinna að málefnum barna með einum eða öðrum hætti — í skólum, félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu, frístundastarfi, sveitarfélögum og fjölmörgum samstarfsaðilum. Þetta er í annað skiptið sem Farsældardagurinn er …
Ég bý í sveit- Málþing um leiðir til byggðafestu
Þriðjudaginn 18. nóvember var haldið málþing að Laugum í Sælingsdal undir yfirskriftinni Ég bý í sveit. Málþingið var lokahnykkur á verkefninu Leiðir til byggðafestu sem var samstarfsverkefni SSV, SSNV og Vestfjarðastofu. Verkefnið sneri sértaklega að því að greina tækifærin og efla nýsköpun á sauðfjárræktarsvæðum Dalabyggðar, Reykhólasveitar, Stranda og Húnaþings vestra. Málþingið hófst á erindum Hlédísar Sveinsdóttur og Björns Bjarnasonar en …
Úrslit í ljóðasamkeppni Júlíönu og Barnó
Ljóðasamkeppni Júlíönu – hátíðar sögu og bóka í Stykkishólmi – og Barnó – BEST MEST VEST er nú lokið og sýna niðurstöður að kraftmikill sköpunarvilji býr meðal ungs fólks á Vesturlandi. Keppnin var opin öllum nemendum á mið- og unglingastigi grunnskólanna á svæðinu og bárust fjölmörg ljóð víða að. Brynhildur Eyja Jóhannesdóttir, nemandi í 6. bekk Grunnskóla Borgarfjarðar, hlaut fyrsta …
Laus störf hjá SSV og Markaðsstofu Vesturlands
Við hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) leitum eftir tveim einstaklingum í okkar góða hóp. Umsóknarfrestur er til 5 desember n.k. Verkefnastjóri fjármála og Uppbyggingarsjóðs Vesturlands – SSV Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi óska eftir að ráða verkefnastjóra fjármála og Uppbyggingarsjóðs Vesturlands. Starfið felur í sér fjármálastjórnun fyrir Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og umsjón með Uppbyggingarsjóði Vesturlands, sem styrkir menningar-, atvinnu- …


