Hrefna Bryndís Jónsdóttir er hætt sem framkvæmdarstjóri Sorpurðunar Vesturlands hf. en Hrefna hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra Sorpurðunar Vesturlands hf. síðastliðin 26 ár en eigendur fyrirtækisins eru sveitarfélögin á Vesturlandi.
Hrefna kláraði rekstrarhagfræði frá Háskólanum á Bifröst en hefur starfað hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi frá árinu 1996 en hún hóf störf fyrst sem ráðgjafi við Atvinnuþróunarfélag Vesturlands.
Frá árinu 2000 hefur Hrefna meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi en lengst sem framkvæmdastjóri Sorpurðunar Vesturlands hf.
Hrafnhildur Tryggvadóttir hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Sorpurðunar Vesturlands hf. en Hrafnhildur hóf störf hjá SSV árið 2023 og hefur hún starfað sem atvinnuráðgjafi.
Hrafnhildur hefur víðtæka reynslu en hún er með BSc próf í náttúruvísindum og umhverfisfræði frá LBHÍ og master í forystu og stjórnun með áherslu á verkefnastjórnun frá Háskólanum á Bifröst.
Hún starfaði í níu ár sem forstöðumaður Upplýsinga- og kynningarmiðstöðvar Vesturlands og starfaði í fjögur ár sem ráðgjafi í umhverfismálum hjá Environice. Árið 2015 hóf hún störf hjá Borgarbyggð, fyrst sem verkefnisstjóri á umhverfis- og skipulagssviði og síðar sem deildarstjóri umhverfis- og framkvæmda.
Hrefna mun vera Hrafnhildi innan handar út árið 2026 en mun svo einbeita sér að hrossarækt og að njóta lífsins með sinni fjölskyldu.
