Nú er komið að lokum í fundaröðinni um endurskoðun Menningarstefnu Vesturlands.
Umræðuefni kvöldsins er fimmti og síðasti hlutinn, samvinna. Pallborðið verður í beinu streymi í kvöld á milli 20:00 og 21:00.
Fjórir öflugir einstaklingar sem starfa að menningarmálum á Vesturlandi ræða um samvinnu.
- Margrét Björk Björnsdóttir (Forstöðumaður Áfangastaðastofu Vesturlands)
- Rögnvaldur Guðmundsson (Formaður Ólafsdalsfélagsins og framkvæmdastjóri fyrirtækisins Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar )
- Ella María Gunnarsdóttir (verkefnastjóri hjá Akraneskaupstað)
- Jónína Erna Arnardóttir (skólastjóri Tónlistarskóla Akraness)
Allir þátttakendur geta tekið þátt í umræðunum með því að senda inn fyrirspurnir eða ábendingar í gegnum athugasemdakerfi Facebook og Mentimeter.
(Menti-kóði verður gefinn upp á fundinum).
Sigursteinn Sigurðsson stýrir umræðum. Starfsmaður menningarstefnunnar er Sólveig Ólafsdóttir.
Jafnframt er bent á umfjöllun menningarfulltrúa hjá SSV um stefnur og stöðu menningarmála á Vesturlandi á YouTube-rás SSV
Fyrir áhugasama má nálgast allar upptökur af fyrri pallborðsumræðum á Facebook-síðu SSV