Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Hótel Hamri Borgarnesi, 15. júní kl. 14:30
Eftirtaldir dagskrárliðir verða teknir fyrir á aðalfundi SSV samkvæmt lögum SSV:
- Skýrsla stjórnar, félaga og rekstrareininga, sem SSV ber ábyrgð á um starfsemi liðins árs
- Ársreikningar SSV og þeirra félaga sem SSV ber fjárhagslega ábyrgð á, ásamt skýrslu endurskoðanda
- Kosning stjórnar og varastjórnar
- Ákvörðun um laun og þóknun til stjórnar og nefnda
- Kosning endurskoðanda
- Önnur mál löglega fram borin
Sama dag verða einnig aðalfundir Starfsendurhæfingar Vesturlands, Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands, Heilbrigðisnefndar Vesturlands og Sorpurðunar Vesturlands.
Dagskrá dagsins:
Kl. 09:30 Aðalfundur Starfsendurhæfingar Vesturlands
Kl. 10:15 Aðalfundur Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands
Kl. 11:15 Aðalfundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands
Kl. 12.15 Hádegisverður
Kl. 13:00 Aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands
Kl. 14:00 Kynning á rekstri Vesturlandsstofu
Kl. 14:30 Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi
Hér undir verður lagður fram ársreikningur þjónustusvæðis Vesturlands um málefni fatlaðra.