Nýverið var gengið frá samningi á milli SSV og Arnarlækjar um úttekt á virkjunarkostum á Vesturlandi. Arnarlækur tekur að sér að skoða og greina allt að 70 mögulega virkjunarkosti á Vesturland, þar sem sérstök áhersla er lögð á virkjanir af stærðargráðunni 50kW til 10MW. Arnarlækur hefur þegar hafið vinnu við verkefnið og er áætlað að því ljúki í lok mars 2020. Niðurstöður verkefnisins verða í formi flokkunar á valkostum ásamt tillögum um frekari athuganir.