Nýverið tóku Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) á móti hópi gesta frá sveitarfélaginu Jelgava í Lettlandi sem komu í kynnisferð til Vesturlands. Markmið heimsóknarinnar var að fræðast um starfsemi SSV, uppbyggingu stoðkerfis atvinnuþróunar á landsvísu og hvernig unnið er að byggðaþróun, nýsköpun, ferðaþjónustu og sóknaráætlun á Vesturlandi.

Heimsóknin hófst á skrifstofu SSV í Borgarnesi þar sem farið var yfir starfsemi samtakanna og hlutverk Markaðsstofu Vesturlands. Sérstök áhersla var lögð á vinnu við Sóknaráætlun Vesturlands, Uppbyggingarsjóð Vesturlands, atvinnu- og nýsköpunarráðgjöf ásamt verkefnum sem snúa að markaðssetningu áfangastaðarins Vesturlands og þróun ferðaþjónustu.
Jafnframt kynntu fulltrúar frá Jelgava starfsemi sveitarfélagsins, atvinnulíf og ferðaþjónustu á sínu svæði og sköpuðust áhugaverðar umræður um sameiginleg verkefni og þær áskoranir sem landsbyggðarsvæði standa frammi fyrir.

Á meðan á dvölinni stóð heimsótti hópurinn meðal annars Landnámssetrið í Borgarnesi þar sem rætt var um mikilvægi menningararfs og sögutengdrar ferðaþjónustu. Einnig var komið við í Breið þróunarfélagi og nýsköpunarsetri á Akranesi þar sem þátttakendur fengu innsýn í hvernig umbreyta má hefðbundnu atvinnuhúsnæði í vettvang nýsköpunar og skapandi atvinnugreina.

Á öðrum degi lá leiðin um Snæfellsnes þar sem gestir kynntu sér fjölbreytt dæmi um svæðisbundna þróun. Heimsóknir voru meðal annars farnar í Gestastofu Snæfellsjökulsþjóðgarðs, menningarsetrið Himinbjörg á Hellissandi og upplýsingamiðstöð Snæfellsnes á Breiðabliki. Þá átti hópurinn fund með Birki Jónssyni bæjarstjóra í Grundarfirði þar sem rætt var um tækifæri og áskoranir smærri sveitarfélaga á landsbyggðinni.



Heimsóknin gaf bæði þátttakendum frá Jelgava og fulltrúum Vesturlands tækifæri til að skiptast á reynslu og hugmyndum um byggðaþróun, atvinnusköpun og sjálfbæra ferðaþjónustu. Slík samskipti styrkja alþjóðleg tengsl og skapa verðmæt tækifæri til lærdóms og samstarfs sem geta nýst svæðum beggja landa til framtíðar.

