Vesturland þátttakandi í verkefninu Gott að eldast

SSVFréttir

Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög munu taka þátt í þróunarverkefnum sem ganga út á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið auglýstu í sumar eftir slíku samstarfi við sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir. Áhugi fyrir þátttöku var mikill og hvorki fleiri né færri en 19 umsóknir bárust.

Þróunarverkefnin eru hluti af aðgerðaáætluninni Gott að eldast en með henni taka stjórnvöld utan um þjónustu við eldra fólk með nýjum hætti. Markmið þróunarverkefnanna er að finna góðar lausnir á samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk og flétta vandlega saman þá þætti sem ríkið sér annars vegar um og hins vegar sveitarfélögin.

Valnefnd hefur nú farið yfir umsóknirnar og sex svæði verið valin til þátttöku. Þau eru:

  • Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) og sveitarfélögin Fjarðabyggð og Múlaþing
  • Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) og annars vegar sveitarfélagið Árborg og hins vegar Hveragerðisbær 
  • Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) og annars vegar Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (tíu sveitarfélög) og hins vegar sveitarfélagið Húnaþing vestra 
  • Heilsugæsla höfuðborgarsvæðis (HH) og sveitarfélagið Mosfellsbær 
  • Heilbrigðisstofnun Vestfjarða (HVEST) og sveitarfélögin BolungarvíkurkaupsstaðurÍsafjarðarbærSúðavíkurhreppurTálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð 
  • Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) og sveitarfélagið Dalvíkurbyggð

 

nánar má lesa um þetta mál  hérna : Stjórnarráðið | Gott að eldast: Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög taka þátt í þróunarverkefnum (stjornarradid.is