Nýsköpunarvikan eða Innovation Week stóð yfir í síðustu viku í Reykjavík. Um er að ræða árlegan viðburð sem er stærsta nýsköpunarhátíð landsins þar sem boðið er upp á fjölbreytta viðburði víðs vegar um borgina.
Landshlutasamtökin ásamt Byggðastofnun stóðu fyrir hliðarviðburði í Grósku þann 28. apríl þar sem nýsköpun á landsbyggðinni var í sviðsljósinu. Viðskiptahraðallinn Startup Landið var kynntur en það er sameiginlegur hraðall fyrir allt landið þar sem lögð er áhersla á nýsköpun og frumkvöðlastarf sem þrífst um allt land. Hann hefur verið keyrður einu sinni og hefst að nýju í haust. Markmiðið með viðburðinum var að kynna það stuðningsumhverfi sem stendur sprotum til boða á landsbyggðinni, skapa tengsl við frumkvöðla, fjárfesta og aðra hagaðila og skapa umræðuvettvang um hvernig megi efla nýsköpun utan höfðuborgarsvæðisins.
Á viðburðinum í Grósku voru m.a. kynningar frá sprotum af landsbyggðinni. Tvö frumkvöðlaverkefni af Vesturlandi voru kynnt; annars vegar Mundialis sem eru grænmetisframleiðendur á Mýrunum sem eru að þróa aðferð til að frostþurrka aukaafurðir grænmetis til nýtingar í matvæli og hins vegar Grammatek sem er máltæknifyrirtæki á Akranesi sem hefur undanfarin ár unnið að þróun talgervislausna.
Auk þessa viðburðar voru landshlutasamtökin með sameiginlegan kynningarbás á aðalsvæði nýsköpunarvikunnar í Austurbæ 29. apríl þar sem hægt var að kynnast nánar nýsköpunarumhverfinu víða um land.
Með þátttöku og sýnileika SSV á Nýsköpunarvikunni leggur SSV áherslu á að styrkja tengsl innan stuðningsumhverfis nýsköpunar á Íslandi og efla og styðja við þau tækifæri sem eru til staðar á Vesturlandi.
Hrafnhildur Tryggvadóttir atvinnuráðgjafi hjá SSV, Anna Björk Nikulásdóttir frá Grammatek og Páll Snævar Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV
Eyrún Eyþórsdóttir frá Mundialis að kynna verkefnið um malað frostþurrkað grænmeti frá Leirulækjarseli á Mýrum.
Anna Björk Nikulásdóttir frá Grammatek að kynna verkefnið en Grammatek er máltæknifyrirtæki á Akranesi með starfsstöð í Nýsköpunarsetrinu Breið.
Helga Guðjónsdóttir atvinnuráðgjafi hjá SSV ásamt Dagný Maddýjar frá Heklan og þeim Geir og Önundi frá Cannartica.
