Kynningarfundur um samfélagslegan ávinning af landsátakinu Ísland ljóstengt

SSVFréttir

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra Mynd: Stjórnarráðið

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Fjarskiptasjóður bjóða til kynningarfundar á netinu miðvikudaginn 12. maí kl. 13:00-14:00 um einstakan árangur af landsátakinu Ísland ljóstengt á síðustu árum. Átakið hefur þegar bylt forsendum búsetu og atvinnurekstrar í sveitum landsins.

Fundurinn er haldinn í tilefni af úthlutun síðustu styrkja til sveitarfélaga á grundvelli landsátaksins Ísland ljóstengt um ljósleiðarauppbyggingu í dreifbýli utan markaðssvæða.
Þá verður kynnt ný skýrsla um samfélagslegan ávinning af Íslandi ljóstengt fyrir dreifbýli landsins.

Dagskrá
  • 13:00 – Samfélagslegur ávinningur af verkefninu Ísland ljóstengt
    Sigurður Ingi Jóhannsson
    , samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
  • 13:15 – Ísland ljóstengt – nálgun og umfang
    Páll Jóhann Pálsson
    , formaður stjórnar fjarskiptasjóðs
     
  • 13:25 – Reynslusögur frá sveitarfélögum
  • 13:35Skýrsla um samfélagsleg áhrif af verkefninu Ísland ljóstengt
    Vífill Karlsson, hagfræðingur
  • 13:50Umræður og spurningar
  • Fundarstjóri: Óstaðfest

Skráningu lýkur þriðjudaginn 11. maí kl. 17:00. Þeir sem skrá sig fá hlekk á veffundinn sem haldinn er á Teams.

 Skráningarsíðahttps://forms.gle/P2H7dqTTfHY7vQLe9