Gísli Einarsson hlýtur Landstólpann í ár!

SSVFréttir

Gísli Einarsson dagskrárgerðarmaður, uppistandari, samfélagsrýnir, blaðamaður, fararstjóri, rithöfundur og lífskúnsner hlýtur Landsstólpann 2026.

„Landstólpinn – samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar“ er árleg viðurkenning sem Byggðastofnun hefur veitt frá árinu 2011. Fyrstur til að hljóta viðurkenninguna var Jón Jónsson þjóðfræðingur á Ströndum. Markmið Landstólpans er að varpa jákvæðu ljósi á landsbyggðina og hvetja til frumkvæðis, skapandi hugsunar og bjartsýni í samfélaginu.

Viðurkenningin er ólík mörgum öðrum verðlaunum þar sem hún er ekki bundin við ákveðinn málaflokk. Hana má veita einstaklingum, fyrirtækjum eða verkefnum sem hafa haft jákvæð áhrif á samfélag og byggðaþróun um land allt.

Til rökstuðnings við tilnefningu Gísla kom meðal annars fram:

„Fyrir utan störf sín sem fjölmiðlamaður hefur Gísli látið til sín taka í samfélagsmálum. Hann hefur verið drifkraftur í samfélagslegri eflingu – stofnaði til að mynda hausthátíðina Sauðamessu í Borgarnesi og jók þá jákvæða upplifun bæjarbúa og nærsveitarfólks. Gísli hefur þá skrifað fjölmörg uppistandsverk, síðast Ferðabók Gísla Einarssonar í samstarfi við Landnámssetur Íslands sem fór sigurför um landið og var sýnt fyrir fullu húsi um allt land. Hugmyndirnar koma svo að segja á færibandi frá Gísla og hann er ávallt til í samstarf fyrir hugmyndir stórar og smáar. Þannig hefur hann orðið mörgum fyrirmynd í hvernig eigi að efla samfélög.

Gísli hefur þá verið tíður gestur á skemmtunum um allt land sem veislustjóri og þá helst þorrablótunum, en í ár náði hann þeim áfanga að hafa staðið veislustjóravaktina á 200 þorrablótum í tæp 30 ár! Gísli hefur verið boðin og búin að aðstoða við skemmtanahald og veislustýringar á þessum viðburðum og framlag hans til eflingu gleðinnar verður þannig ómetanlegt.

Gísli hefur samhliða störfum sínum annast fararstjórn innanlands sem utan. Gísli býr yfir yfirgripsmiklum og djúpstæðum fróðleik á Íslandi: sögu þess, menningu og mannlífi í nútíð og fortíð. Sú þekking er ekki síst til þess fallin að auka á vinsældir hans, heldur einnig að auka á gæði þess efnis sem frá honum kemur – og áhuginn á viðfangsefninu er smitandi. Hann kom að stofnun Ferðafélags Borgarfjarðar sem stendur fyrir gönguferðum um hérað, og var verkefnastjóri í uppbyggingu gönguleiða víða um Vesturland – t.d. Vatnaleið á Mýrum“.