Ætlar þú að senda umsókn í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða?

SSVFréttir

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða er opin fyrir umsóknir til 15.október n.k.
– sjá nánar á vef Ferðamálastofu

  • Áhersla ráðherra í úthlutun fyrir framkvæmdaárið 2025 er: “ minna sótt svæði og lengingu ferðatímabils“ auk hefðbundinna áherslna sem tilgreindar eru í lögum um sjóðinn s.s. verndun náttúru, öryggi ferðafólks og uppbyggingu innviða  – en einnig er áhersla á það að viðkomandi verkefni sem sótt er um styrk fyrir sé tilgreint í áfangastaðaáætlun viðkomandi landshluta.
  • Ef þú ætlar að senda inn umsókn í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða þá er mikilvægt að skoða hvort fyrirhugað verkefni sem þú ert að sækja um styrk til að vinna sé ekki örugglega á lista í Áfangastaðaáætlun Vesturlands, sjá: Áfangastaðaáætlun Vesturlands  – ef verkefnið er ekki þar  – hafðu þá samband við okkur.
  • Vonandi verða margar umsóknir sendar inn í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða frá Vesturlandi í haust  – endilega hafið samband ef það er eitthvað að vefjast fyrir ykkur  – gangi ykkur vel.