Ályktun stjórnar SSV um samgöngumál.

Samtök Sveitarfélaga á VesturlandiFréttir

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi skorar á ríkisstjórn Íslands, samgönguráðherra og þingmenn Norð vesturkjördæmis að fylgja eftir án tafar tillögum og hugmyndum um tvöföldun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi og tvöföldun Hvalfjarðarganga. Liðlega tvær milljónir ökutækja fara um Kjalarnes og Hvalfjarðargöng árlega og einsýnt að mæta þarf eðlilegum kröfum um umferðaröryggi með nauðsynlegum framkvæmdum. Vísað er til samkomulags Spalar ehf. og Vegagerðarinnar frá 9. janúar 2007 þar sem Vegagerðinni er tryggð fjármögnun til nauðsynlegra undirbúningsframkvæmda vegna tvöföldunar vegar á Kjalarnesi, en Spölur ehf. hefur þegar lokið öllum nauðsynlegum undirbúningsrannsóknum vegna tvöföldunar Hvalfjarðarganga.

Ályktun stjórnar SSV um samgöngumál

Jafnframt skorar stjórn Samtaka sveitarfélga á Vesturlandi á stjórnvöld að gera nú þegar áætlun um lagningu bundins slitlags á núverandi malarvegi Vesturlands. Benda má á að breytt atvinnuþátttaka, akstur skólabarna og aðrar breytingar í þjóðfélaginu gera þessar umbætur á vegakerfinu nauðsynlegar.

Tvöföldun vegar á Kjalarnesi, tvöföldun Hvalfjarðarganga og lagning bundins slitlags á malarvegi á Vesturlandi eru í senn mjög mikilvægt öryggismál en einnig skynsamleg og arðsöm framkvæmd ekki síst nú þegar brýn nauðsyn er á atvinnuskapandi framkvæmdum.