Kynning á svæðisáætlun ásamt umhverfisskýrslu

Samtök Sveitarfélaga á VesturlandiFréttir

Nú er til kynningar tillaga að endurskoðaðri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs hjá 34 sveitarfélögum á Suðvesturlandi fyrir tímabilið 2009 – 2020 ásamt umhverfismati áætlunarinnar.


Sorpsamlög sveitarfélaganna á svæðinu þ.e. SORPA bs., Sorpurðun Vesturlands hf., Sorpstöð Suðurlands bs. og Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. gerðu með sér samkomulag þann 12. feb. 2008 að standa sameiginlega að endurskoðun áætlunarinnar sakvæmt lögum nr. 55/2003, ásamt gerð umhverfismats áætlunarinnar sem nú er skylt að gera samkvæmt lögum nr. 105/2006. Fyrir liggur samþykkt svæðisáætlun fyrir sama svæði frá desember 2005 og byggir endurskoðunin á henni.

Ábyrgð á framkvæmd endurskoðunarinnar var í höndum sérstakrar verkefnisstjórnar samningsaðilanna. Aðalráðgjafar hennar voru MANNVIT verkfræðistofa á Íslandi og WSP ráðgjöf í Svíþjóð.

Í samræmi við 7. gr. laga nr. 105/2006 er tillagan nú auglýst ásamt umhverfisskýrslu og er gefinn 6 vikna frestur til að koma á framfæri athugasemdum varðandi umhverfisáhrif áætlunarinnar.

Tillögu að endurskoðaðri áætlun ásamt umhverfismatsskýrslu er að finna hér:

http://samlausn.is/resources/Files/Samlausn/SK-100-004-2-140-006_Til_kynningar.pdf

Tekið er við athugasemdum með tölvupósti á netfanginu samlausn@mannvit.is eða bréflega á skrifstofu Mannvits hf., Laugavegi 178, 105 Reykjavík fyrir 1.mars 2009, merkt: Gunnar Herbertsson/Teitur Gunnarsson.