Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) taka þátt í ráðstefnu Evrópuverkefnisins IN SITU sem fram fer 11.–13. maí í Valmiera í Latvíu. Ráðstefnan ber heitið Culture Matters Here: Cultivating Creative Place-based innovation in Non-urban Communities og eins og nafnið gefur til kynna fjallar um menningarstarf í dreiðfari byggðum. Vesturland var eitt af rannsóknarsvæðum verkefnisins og hefur SSV tekið virkan þátt í samstarfinu með því að gera verkefnið að áhersluverkefni Sóknaráætlunar Vesturlands í samstarfi við Háskólann á Bifröst.
IN SITU er evrópskt rannsóknarverkefni sem beinir sjónum að menningar- og skapandi greinum í dreifðum byggðum og hvernig þær geta orðið drifkraftur nýsköpunar, samfélagsþróunar og sjálfbærni utan stærstu þéttbýlissvæða. Verkefnið hefur staðið yfir undanfarin ár með þátttöku fjölmargra samstarfsaðila víðs vegar um Evrópu.
Á ráðstefnunni verður sjónum beint að mikilvægi staðbundinnar menningar, skapandi starfsemi og samstarfs við uppbyggingu samfélaga utan borgarsvæða. Þar verða kynntar niðurstöður verkefnisins, rannsóknir og dæmi um nýsköpun og þróun sem orðið hafa til í þátttökusvæðunum.
Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúi SSV sækir ráðstefnuna fyrir hönd SSV. Hann verður með kynningu á menningarhluta Sóknaráætlunar Vesturlands og þeirri nálgun sem þar hefur verið unnið eftir er varðar menningu og skapandi greinar í landshlutanum.
Ráðstefnan verður einnig í beinu streymi og geta áhugasamir fylgst með dagskránni og erindum á netinu. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna og streymið má finna á vef verkefnisins IN SITU.
Upplýsingar um streymi á FB síðu In Situ
Dagskrá ráðstefnunnar: CULTURE-MATTERS-HERE-2026-detailed-programme-v2
