Skipulagsstofnun í samvinnu við SSV stendur fyrir kynningarfundi um Landsskipulagsstefnu 2013-2024 á Hótel Hamri, miðvikudaginn 17. október kl. 13-15.
Um er að ræða um tveggja klukkustunda fund, þar sem fyrri hlutinn fer í kynningu á landsskipulagsstefnu og í kjölfarið er boðið upp á umræður og svör við fyrirspurnum. Fulltrúar Skipulagsstofnunar verða Stefán Thors, forstjóri Skipulagsstofnunar og Einar Jónsson, verkefnisstjóri.
Auglýsing um tillögu að Landsskipulagsstefnu 2013-2024
Í samræmi við 6. mgr. 11. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 auglýsir Skipulagsstofnun hér með tillögu að landsskipulagsstefnu 2013-2024 ásamt umhverfisskýrslu.
Landsskipulagsstefna 2013-2024 – Tillaga til auglýsingar
Umhverfisskýrsla með tillögu að landsskipulagsstefnu
Tillagan verður lögð fyrir Alþingi til þingsályktunar en hún varðar:
a) Skipulagsmál á miðhálendi Íslands
b) Búsetumynstur og dreifingu byggðar
c) Skipulag á haf- og strandsvæðum
Fylgiskjöl tillögunnar sem einnig er hægt að nálgast á http://www.landsskipulag.is/ eru:
1. Yfirlit yfir stefnu stjórnvalda í einstökum málaflokkum sem varða landnotkun
2. Greinargerð um stöðu og þróun skipulagsmála
3. Greinargerð um stöðu haf- og strandsvæðaskipulags
4. Skýrsla um ferðamennsku á miðhálendi Íslands
Tillagan ásamt fylgiskjölum liggur einnig frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166 og í Þjóðarbókhlöðunni.
Allir sem þess óska geta gert athugasemdir við tillöguna og umhverfismat hennar en þær þurfa að hafa borist Skipulagsstofnun, Laugavegi 166 eigi síðar en 20. nóvember 2012 eða á netfangið landsskipulag@skipulagsstofnun.is.
Nánari upplýsingar veitir Einar Jónsson hjá Skipulagsstofnun (einar@skipulagsstofnun.is)