Hefur þú hugmynd? – Styrkir til atvinnumála kvenna

Samtök Sveitarfélaga á VesturlandiFréttir

Hefur þú góða viðskiptahugmynd? Rekur þú fyrirtæki og vilt þróa nýja vöru eða þjónustu?

Vinnumálastofnun/Velferðarráðuneyti auglýsir styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2012 lausa til umsóknar. Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.

  • Verkefnið sé í eigu konu/kvenna og stjórnað af konu
  • Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun
  • Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar
  • Viðskiptahugmynd sé vel útfærð
  • Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetingar og gerðar markaðsáætlunar, þróunar vöru eða þjónustu, hönnunar og efniskostnaðar.
  • Ennfremur geta konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun og hafa hug á því að stofna fyrirtæki á næstunni eða hafa stofnað fyrirtæki en ekki hafið rekstur, sótt um styrk til að koma henni í framkvæmd.

Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 30.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 3.000.000. Ekki eru veittir lægri styrkir en kr. 400.000.

Umsóknarfrestur er til og með 14.02.2012 og skal sækja um rafrænt á heimasíðu verkefnisins en þar má ennfremur finna nánari upplýsingar um styrkina. www.atvinnumalkvenna.is


Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna er velferðarráðherra veitir árlega. Styrkir þessir hafa verið veittir síðan árið 1991 og er markmið þeirra að efla atvinnulíf og auka aðgengi kvenna að fjármagni.

Til ráðstöfunar að þessu sinni eru 30 milljónir og er hámarksstyrkur að þessu sinni kr. 3.000.000.

Sérstök ráðgjafanefnd metur umsóknir og er umsóknarfrestur til og með 14.febrúar og mun úthlutun fara fram í apríl.

Styrkhæf verkefni skulu vera í eigu kvenna (amk 50%) og stjórnað af konum og skulu fela í sér atvinnusköpun til frambúðar. Um nýnæmi skal vera að ræða og kröfur eru gerðar um að verkefni skekki ekki samkeppnisstöðu á markaði.

Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, áætlanagerðar, þróunarkostnaðar og markaðssetningar (innanlands og erlendis). Auk þess geta konur sem hafa nýlega stofnað fyrirtæki eða eru að stofna fyrirtæki, sótt um styrk til að koma fyrirtækinu í framkvæmd (launastyrkur). Með þeirri umsókn þarf að fylgja fullgerð viðskiptaáætlun.

Ekki eru veittir styrkir vegna stofnkostnaðar, framkvæmda, stærri fjárfestinga né rekstrarstyrkir. Vakin er athygli á því að styrkir eru skattskyldir og þarf að telja fram kostnað á móti.
Ekki eru veittir hærri styrkir en sem nema helming kostnaðar við verkefni en þetta á þó ekki við um gerð viðskiptaáætlunar.

Allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar um útfyllingu umsóknar má finna á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.isen þar er að auki rafrænt umsóknareyðublað.