Samtök sveitarfélaga á vesturlandi halda vefráðstefnu um aukið samstarf safna á Vesturlandi. Ráðstefnan hefst á fræðsluerindum um safnastarf og starf safna á landsbyggðinni, en seinni hluti ráðstefnunnar er málþing safnafólks, starfsmenn menningarverkefna sveitarfélaganna og nefndarmenn menningarmálanefnda á Vesturlandi. Fræðsluerindin eru öllum opin og verða streymt á Facebook síðu SSV úr Safnahúsi Borgarfjarðar. Ráðstefnan er hluti af stærra verkefni. Samkvæmt Byggðaráætlun …
Seinni könnun ferðaleiðar um Borgarfjörð
Nú liggja fyrir svör úr fyrstu spurningakönnuninni sem lögð var fyrir hagaðila ferðaleiðar um Borgarfjörð. Hér má nálgast ítarlega umræðu um niðurstöður þeirrar könnunar og þau þemu sem dregin voru fram í myndbandsupptöku: Þessi þemu ferðaleiðarinnar eru viðfangsefni næstu könnunar okkar. Nú spyrjum við um staði sem þið tengið við þemun út frá ykkar staðsetningu á svæðinu. Könnunin er mikilvægur …
Ráðgjöf SSV
Við hjá SSV ákváðum að kynna sérstaklega ráðgjöfina okkar á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála. Létum við því útbúa kynningarmyndband til að koma henni enn frekar á framfæri. Kíktu á nýja myndbandið okkar! Þarftu aðstoð? …
Fyrirtækjakönnun landshlutanna 2019
Skýrsla um Fyrirtækjakönnun landshlutanna fór á vefinn í þessari viku (hér). Áður var búið að gefa út meginniðurstöður á knappara formi (hér). Frá því að könnunin var gerð hefur COVID-19 gjörbreytt rekstrarumhverfi nánast allra atvinnugreina. Eftir sem áður þá er þetta mikilvæg mæling varðandi það hvernig staðan var áður en veiran helltist yfir. Ný könnun verður gerð í haust þegar …
Greining á áhrifum atvinnuleysis á heildartekjur sveitarfélaga á Vesturlandi
Óvissa er mikil í efnahagsmálum hérlendis sem og erlendis eftir að COVID-19 varð fyrst vart í Asíu í lok árs 2019. Öllum er nú ljóst að kreppa er í efnahagsmálum sem á eftir að teygja sig víða og hafa áhrif m.a. á fjárhag sveitarfélaga. Snemma vöknuðu spurningar meðal sveitarfélaga á Vesturlandi um hver áhrifin yrðu á þeirra tekjur og að …
Menningardagskrá á Vesturlandi
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Markaðsstofa Vesturlands (MV) ætla með stuðningi frá Sóknaráætlun Vesturlands að stuðla að öflugri menningardagskrá á Vesturlandi í sumar. Af því tilefni er kallað eftir skráningu á viðburðum og menningarstarfi sem er á döfinni í landshlutanum og haldnir verða á tímabilinu 1. júní – 31. ágúst. Hér má sjá fréttatilkynningu með nánari upplýsingum: Fréttatilkynning: Menningardagskrá …
Ráðstefna: Menntun fyrir störf framtíðar
Menntaskóli Borgarfjarðar, með stuðningi Sóknaráætlunar Vesturlands, heldur þann 19. maí stafræna ráðstefnu undir yfirskriftinni “Menntun fyrir störf framtíðarinnar”. Hvernig ætlum við að undirbúa nemendur, skólakerfið og fyrirtækin fyrir hraðar breytingar næstu ára og hefur COVID-19 flýtt þessum breytingum? Mjög áhugaverður hópur fyrirlesara ætlar að ræða sína framtíðarsýn og deila með okkur, sjá hér að neðan. Ráðstefnunnni verður streymt á heimasíðu …
Vinna við ferðaleiðir um Borgarfjörð
Vinna er hafin við gerð ferðaleiðar um Borgarfjörð. Nú köllum við eftir þátttöku íbúa, fyrirtækja og velunnara svæðisins í þessari fyrstu spurningakönnun sem send er út um svæðið sem ferðaleiðin tengist. Tilgangur þessarar könnunar er að fanga anda Borgarfjarðar og finna sérstöðu hans og einkenni. Á þeim gögnum sem safnast í könnuninni byggjum við þemu leiðarinnar og ímynd. Verkefnið er …
Nýtt skipurit Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV)
Á fundi stjórnar SSV nýverið var samþykkt nýtt skipurit fyrir samtökin og hefur verið unnið að innleiðingu þess undanfarið. Megin breytingin felst í því að Markaðsstofa Vesturlands sameinast SSV og verða því til tvö svið, annars vegar atvinnuþróun og hins vegur áfangastaðurinn. Eftir sem áður verður Markaðsstofan í sérstöku hlutafélagi og í gegnum það verða öll markaðsverkefni fyrir ferðaþjónustuna rekin. …
Markaðsstofan á ferðinni næstu daga
Markaðsstofan ætlar að eiga samtal við ferðaþjónustuna á Vesturlandi á næstu dögum. Allir velkomnir Hér að neðan má sjá dagskrá: Miðvikudaginn 13. maí 2020 – Snæfellsnes Kl. 10:00 – Breiðablik/Gestastofa Snæfellsness Kl. 13:00 – Sker í Ólafsvík Kl. 15:00 – Kaffi 59 í Grundarfirði Kl. 17:00 – Bókasafnið í Stykkishólmi Fimmtudaginn 14. maí 2020 – Dalir og Borgarbyggð Kl. 13:00 …