Nýverið veitti Sóknaráætlun Vesturlands fyrirtækinu arTTré ehf., sem er umsjónaraðili Fab-Lab smiðju Vesturlands á Akranesi, styrk að upphæð kr. 600.000.- arTTré mun nýta styrkinn til að undirbúa námskrá og námskeið þar sem farið verður í undirstöðuatriði stafrænar framleiðslutækni. Meginmarkmið námskeiðsins er að kynna undirstöðuatriði stafrænnar framleiðslutækni auk ferilsins við að fá hugmynd og vinna hana áfram í frumgerð. Námskeiðinu er …
Andlát – Guðjón Ingvi Stefánsson fyrrverandi framkvæmdastjóri SSV
Guðjón Ingvi Stefánsson fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) er látinn 82 ára að aldri. Guðjón var ráðinn framkvæmdastjóri árið 1973 og starfaði hjá SSV fram til ársins 2000. Haustið 2019 var haldið upp á fimmtíu ára afmæli Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi með fjölmennri samkomu í Hjálmakletti. Í frétt um andlát Guðjóns í Skessuhorni rifjaði blaðið upp ávarp sem …
Fasteignamarkaður á Vesturlandi
Ný Glefsa var sett á vef SSV í dag. Þar er fjallað um fasteignamarkaðinn á Vesturlandi. Nýjustu tölur yfir fermetraverð og fjölda seldra eigna eru birtar og þróun rakin yfir lengri tíma. Glefsuna má finna hér.
Jólablað skapandi greina
Nemendur í skapandi greinum við Háskólann á Bifröst hafa gefið út veglegt jólablað. Jólaritið inniheldur margt skemmtilegt, þ.á.m. umfjöllun um nýtt listagallerí sem verður opnað á Bifröst bráðlega og viðtöl við kennara og bændur í nágrenni háskólans. Þá eru jólauppskriftirnar á sínum stað ásamt jólaföndri og öðru jólalegu eins og sagan af því þegar Stúfur Grýluson týndist. Af áhugaverðum viðtölum …
Yfirferð umsókna í Uppbyggingarsjóð Vesturlands stendur yfir
Frestur til að sækja um styrki í Uppbyggingarsjóð Vesturlands í fyrri úthlutun árið 2022 rann út miðvikudaginn 17. nóvember síðastliðinn. Þátttaka var svipuð og undanfarin ár og bárust alls 127 umsóknir í sjóðinn þar sem óskað var eftir 224,6 milljónum króna. Til úthlutunar eru 60 milljónir króna á árinu 2022 sem skiptist þannig að 29 mkr. er úthlutað í atvinnu- …
Matsjáin 2022 – 82 umsóknir!
Nú á dögunum lauk umsóknarfresti í Matsjána. Um er að ræða verkefni sem er ætlað smáframleiðendum matvæla sem vilja styrkja leiðtogahæfileika sína, öðlast færni til að þróa vörur, þjónustu og tengslanet sitt í greininni ásamt því að auka á þekkingu sína í kynningar- og markaðsmálum. Matsjáin er samstarfsverkefni landshlutasamtakanna og SSFM en allir þátttakendur í verkefninu eru félagsmenn í SSFM …
Fjármál sveitarfélaga: Kostnaður eftir málaflokkum
Fyrir fáeinum dögum kom út nýr Hagvísir sem fjallar um kostnað sveitarfélaga og hvernig hann hefur þróast í Covid-19 kreppunni. Áhersla er á sveitarfélög á Vesturlandi en líka er skoðað hvernig þróunin varð hjá sveitarfélögum á landinu öllu. Kostnaðurinn er skoðaður í heild sinni en einnig brotinn upp eftir málaflokkum. Kostnaður sveitarfélaga er einnig greindur eftir málaflokkum í samanburði við …
Afgreiðslan í Fíflholtum lokar kl. 14:00 föstudaginn 26. nóvember
Afgreiðslan í Fíflholtum lokar kl. 14:00 föstudaginn 26.nóvember vegna árshátíðar starfsmanna. Starfsfólk Sorpurðunar Vesturlands
Matsjáin – umsóknarfrestur rennur út 20. nóvember
Umsóknarfresturinn í Matsjánna 2022 mun renna út laugardaginn næstkomandi, 20. nóvember. Við hvetjum alla matarframleiðendur, stóra sem smáa, til þess að nýta þetta frábæra tækifæri til þess að styrkja stöðu sína í vaxandi umhverfi matvælaframleiðenda! Umsóknina má nálgast hér Við mælum með að kíkja á kynningarfundinn um Matsjánna 2022 sem má nálgast hér Allar nánari upplýsingar um verkefnið og aðstoð …
Umsóknarfrestur í Uppbyggingarsjóð Vesturlands er út 17. nóvember
OPIÐ ER FYRIR UMSÓKNIR Í UPPBYGGINGARSJÓÐ VESTURLANDS TIL OG MEÐ 17. NÓVEMBER ÚTHLUTUN JANÚAR 2022 Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands. -Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar -Verkefnastyrkir til menningarmála …