Sumarlokun frá 14. júlí – 3. ágúst

SSVFréttir

Skrifstofa SSV er lokuð vegna sumarfría frá 14. júlí til 3. ágúst. Ef erindið er mjög áríðandi er hægt að senda tölvupóst á netfangið: pall@ssv.is Gleðilegt sumar Starfsfólk SSV

Viðburðir á Vesturlandi 2021

SSVFréttir

Nú þegar sumarið er komið, fjöldatakmarkanir heyra sögunni til og sólin er farin að skína þá er heldur betur tilefni til þess skemmta sér, skoða landið og njóta menningarinnar. Sóknaráætlun og Markaðsstofa Vesturlands vilja því leggja hönd á plóg og stuðla að fjölbreyttri viðburðadagskrá á Vesturlandi. Sóknaráætlun Vesturlands býður listafólki og viðburðahöldurum upp á stuðning og samstarf við viðburðahald á …

Undirbúningur hafinn að innleiðingu nýrrar framtíðarlausnar til meðhöndlunar á brennanlegum úrgangi í stað urðunar

SSVFréttir

Fjögur sorpsamlög á suðvesturhorni landsins og umhverfis- og auðlindaráðuneytisið hafa gert með sér samning um forverkefni til undirbúnings að innleiðingu framtíðarlausnar til meðhöndlunar á brennanlegum úrgangi í stað urðunar. Samband íslenskra sveitarfélaga mun auk þess tengjast verkefninu með sinni sérþekkingu á málaflokknum. Sorpsamlögin fjögur eru SORPA bs., Kalka sorpeyðingarstöð sf., Sorpurðun Vesturlands hf. og Sorpstöð suðurlands bs. Starfssvæði þessara samlaga …

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið auglýsir störf án staðsetningar

SSVFréttir

Við viljum vekja athygli á því að Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið er núna að auglýsa á Starfatorgi störf án staðsetningar.  Sjá auglýsingar: –Sérfræðingur hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga -Verkefnastjóri á sviði sveitarstjórnarmála Víða á Vesturlandi er húsnæði þar sem boðið er upp á vinnurými fyrir fólk sem vinnur störf án staðsetningar. Á vef Byggðastofnunar er mælaborð sem sýnir staðsetningar á húsnæði þar sem …

VEFFUNDUR: Vesturland í sókn – Kolefnisspor Vesturlands

SSVFréttir

SSV boðar til fundar á Teams miðvikudaginn 26. maí kl. 09:00-10:00. Á fundinum mun Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur fara yfir helstu niðurstöður úr skýrslu sem hann og fyrirtæki hans UMÍS hafa unnið fyrir Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi um Kolefnisspor Vesturlands. Skýrslan kom út fyrr í þessum mánuði og í henni koma fram mögulegar aðgerðir til að minnka kolefnissporið. Skýrsla: Kolefnisspor Vesturlands …

Ný skýrsla um Ísland ljóstengt leiðir í ljós ótvíræðan árangur og samfélagslegan ávinning af verkefninu

SSVFréttir

Landsátakinu Ísland ljóstengt lýkur á þessu ári, en síðustu styrktarsamningar Fjarskiptasjóðs við sveitarfélög um ljósleiðarauppbyggingu í dreifbýli utan markaðssvæða voru undirritaðir í lok síðasta mánaðar. Vífill Karlsson hagfræðingur og atvinnuráðgjafi SSV vann skýrslu um Ísland ljóstengt fyrir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og  leiðir hún í ljós ótvíræðan árangur og samfélagslegan ávinning af verkefninu. Í niðurstöðum skýrslunnar segir að betri fjarskiptatengingar hafi …

Fab Lab smiðja Vesturlands á Akranesi tekin til starfa

SSVFréttir

Síðast liðinn föstudag var skrifað undir samstarfssamning um rekstur Fab Lab smiðju Vesturlands á Akranesi. Fab lab smiðjan er komin í stórt og glæsilegt húsnæði á Breiðinni og er það fagnaðarefni hvað vel hefur tekist til. Smiðjan verður nokkurs konar móðurstöð fyrir aðrar Fab Lab smiðjur á Vesturlandi og víðtækur samstarfsvettvangur skóla og fyrirtækja. Að henni standa 23 aðilar af …

Matvælasjóður auglýsir úthlutun í annað sinn: 630 milljónir til úthlutunar

SSVFréttir

Nú er fullt tilefni til að setjast niður og skrifa umsókn í matvælasjóð. Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu um land allt. Umsóknarfrestur í Matvælasjóð er til og með 6. júní. Atvinnuráðgjafar SSV bjóða upp á ráðgjöf og aðstoð …

Unnið að tillögum um bætta þjónustu við aldraða á Vesturlandi

SSVFréttir

  Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi gáfu á síðasta ári út Velferðarstefnu Vesturlands þar sem fjallað var um öll velferðarmál í landshlutanum; heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu og þjónustu við fatlaða einstaklinga, starfsendurhæfingu, æskulýðs- og forvarnamál og öldrunarþjónustu. Það má segja að stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi hafi að undanförnu í auknum mæli farið í stefnumótunarvinnu fyrir Vesturland og í kjölfar fundar með yfirmönnum …