Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi verður fulltrúi Vesturlands í nýju stafrænu ráði sveitarfélaga. Verkefni ráðsins er að koma á miðlægu samstarfi sveitarfélaga til að auðvelda þeim að verða virkir þátttakendur í stafrænni þjónustu og nýta nútímatækni til að bæta þjónustu og samskipti við íbúana.
Stjórn SSV skipaði Sævar í ráðið á stjórnarfundi þann 26. ágúst sl.
![](https://ssv.is/wp-content/uploads/2020/09/Sævar-Freyr-Þráinsson.png)