Skýrsla um Fyrirtækjakönnun landshlutanna fór á vefinn í þessari viku (hér). Áður var búið að gefa út meginniðurstöður á knappara formi (hér). Frá því að könnunin var gerð hefur COVID-19 gjörbreytt rekstrarumhverfi nánast allra atvinnugreina. Eftir sem áður þá er þetta mikilvæg mæling varðandi það hvernig staðan var áður en veiran helltist yfir. Ný könnun verður gerð í haust þegar mesti stormurinn er genginn yfir og tími uppbyggingar vonandi hafinn.