„Við vekjum athygli á því að búið er að setja Vefsjá Vesturlands inn á heimasíðu SSV og innan skamms verður hún einnig aðgengileg á síðu Vesturlandsstofu west.is. Vefsjáin er unnin af fyrirtækinu Hvítárósi ehf., sem er ungt fyrirtæki á Vesturlandi sem sérhæfir sig m.a. í landfræðilegum gagnagrunnum. Vefsjáin hefur að geyma fjölmargar upplýsingar um Vesturland og er sérstaklega hugsuð fyrir ferðamenn. Vefsjáin var unnin í tengslum við verkefnið Áfangastaðaáætlun Vesturlands DMP og er fjármögnuð af Sóknaráætlun Vesturlands.
Ef farið er inn á heimasíðu SSV má finna hnapp fyrir vefsjána efst til hægri á síðunni. Sjón er sögu ríkari.“