Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir málþingi um málefni innflytjenda á Vesturlandi, sem haldið verður í Klifi, Ólafsvík 21.mars næstkomandi.
Málþingið mun hefjast kl. 10:00 og áætlað er að því ljúki kl. 14:00. Sjá nánari dagskrá HÉR
Málþingið er öllum opið og ekkert þátttökugjald
Skráning fer fram á netfangið kristin@ssv.is eða í síma 437 1318
Málefni innflytjenda hafa mikið verið í umræðunni undanfarið þar sem mikil fjölgun hefur verið á innflytjendum, í lok ársins 2000 voru 260 starfandi innflytjendur á Vesturlandi en þeir voru 450 í árslok 2005. Sé litið nánar þá eru nýbúar í lok árs 2005, hlutfallslega flestir á Snæfellsnesi eða 8,6% – því næst er 4,2% á Borgarfjarðarsvæðinu, 3,8% í Dölum og svo 2,4% á Akranessvæði.
Leitast verður við að svara spurningunni: Hvernig hafa sveitarfélög, atvinnurekendur og íbúar á Vesturlandi tekið á móti innflytjendum ?
Markmiðið með málþinginu er m.a. að varpa ljósi á eftirfarandi spurningar:
- Höfum við tekið vel á móti innflytjendum hér á Vesturlandi?
- Hvaða upplýsingar eru í boði fyrir innflytjendur?
- Hvaða upplýsingar vantar?
- Hver er stefna stjórnvalda varðandi innflytjendur?
- Hver er upplifun innflytjenda þegar þeir flytja á Vesturland?
- Hver eru kjara- og atvinnuréttindi innflytjenda?