Næstum hundrað verkefni sækja um styrk í Uppbyggingarsjóð

SSVFréttir

Umsóknargátt Uppbyggingarsjóðs Vesturlands lokaði í dag, 21. október, kl. 14:00. Alls bárust 93 umsóknir í sjóðinn sem skiptast á eftirfarandi hátt:

  • 30 umsóknir um atvinnu- og nýsköpunarstyrki
  • 57 umsóknir um menningarstyrki
  • 6 umsóknir um stofn- og rekstrarstyrki lögaðila

Mikill fjöldi umsókna endurspeglar þann kraft sem er til staðar í atvinnulífi, nýsköpun og menningarstarfi á Vesturlandi og þann áhuga sem svæðið sýnir þróunar- og uppbyggingarverkefnum.

Nú hefjast fagráð Uppbyggingarsjóðs handa við lestur og mat á umsóknunum. Í byrjun desember fundar síðan úthlutunarnefnd sem tekur ákvörðun um hvaða verkefni munu hljóta styrk. Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs fer svo fram á nýju ári en það verður nánar auglýst síðar.

Markmið Uppbyggingarsjóðs Vesturlands er að styðja við verkefni sem efla atvinnuþróun, nýsköpun, menningu og samfélagslega uppbyggingu á Vesturlandi og stuðla að öflugu og fjölbreyttu mannlífi í landshlutanum.