Glefsa – Þjónustu og atvinnusókn

SSVFréttir

Á Vesturlandi sóttu íbúar Hellissands mest þjónustu út fyrir heimabyggð árið 2024, en íbúar Akraness, Borgarness og Stykkishólms minnst. Íbúar Búðardals, Grundarfjarðar og Ólafsvíkur komu næst á eftir íbúum Hellissands. Af þéttbýlisstöðum dróst þjónustusókn mest saman syðst á Vesturlandi en jókst mest í Ólafsvík og í dreifbýli Dalanna. Á Vesturlandi var atvinnusókn utan búsetusvæðis, mest á Akranesi en næst mest í Borgarnesi. Á norðarverðu Vesturlandi var hún minni en þar var hún mest í Ólafsvík og Grundarfirði. Glefsuna má finna í heild sinni á þessari slóð.