Dagana 27. og 28. maí var vorfundur atvinnuráðgjafa landshlutasamtakanna og Byggðastofnunar haldinn á Hótel Klaustri á Kirkjubæjarklaustri. Megin viðfangsefni fundarins að þessu sinni voru málefni atvinnuráðgjafar og unnið var í nokkrum vinnustofum að verkefnum sem miða að þróun og eflingu ráðgjafar á landsbyggðinni.
Nýstofnað fagráð atvinnuráðgjafar hafði skilgreint ákveðin verkefni og var unnið að útfærslum þeirra og m.a. rætt um ráðgjöfina sjálfa, helstu verkefni og áskoranir.
Fundurinn hófst á vinnustofu með fulltrúum Rannís, þar sem megináherslan var lögð á þekkingarmiðlun og aukið samstarf atvinnuráðgjafa landshlutasamtakanna og Rannís með það að markmiði að styðja betur við umsóknir af landsbyggðinni inn í sjóði Rannís og auka samkeppnishæfni umsókna utan af landi.
Á seinni deginum var haldið áfram að vinna í vinnustofum um frekari þróun atvinnuráðgjafar, þar var m.a. fjallað um hvernig handbók ráðgjafans gæti litið út og hvaða verkfæri eru nauðsynleg í verkfærakistu ráðgjafans. Þá var fjallað um hvernig unnt sé að meta árangur atvinnuráðgjafar með markvissum hætti.
Fundur sem þessi er gott tækifæri tli að efla tengsl milli samstarfsðila og miðla þekkingu sem styður stoðkerfi atvinnuþróunar og nýsköpunar um allt land.
Eftir hádegi fór fram ársfundur Byggðastofnunar í félagsheimilinu Kirkjuhvoli, þar sem farið var yfir helstu áherslur í starfsemi stofnunarinnar, kynnt voru ákveðin byggðaþróunarverkefni og farið yfir niðurstöður þjónustukönnunar Byggðstofnunar. Þá voru veittir styrkir úr Byggðarannsóknasjóði.
Hápunktur fundarins var þegar Landstólpinn – samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar var veittur en annað árið í röð féll hann í skaut Vestlendings, en líkt og áður hefur komið fram, þá hlaut Gísli Einarsson Landstólpann að þessu sinni.
Hópavinna ráðgjafa
Hópur ráðgjafa landshlutasamtakanna á fundi á Kirkjubæjarklaustri. Hrafnhildur Tryggvadóttir, Ólöf Guðmundsdóttir og Helga Guðjónsdóttir frá SSV. Mynd frá Byggðastofnun.
Gísli Einarsson sem hlaut samfélagsviðurkenningu Byggðastofnunnar, Landstólpann að þessu sinni.